Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 648/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 648/2021

Fimmtudaginn 3. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2021, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 6. júlí 2020 og var umsóknin samþykkt 15. október 2020. Þann 14. október 2021 bárust Vinnumálastofnun þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B. Þann 21. október 2021 bárust skýringar frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2021, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar frá og með 27. október 2021 á grundvelli 5. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni þann 1. nóvember 2021 sem barst með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2021. Kærandi óskaði eftir endurupptöku þann 24. janúar 2022 og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 27. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 2. desember 2021. Með bréfi, dags. 7. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. janúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. janúar 2022. Viðbótargögn bárust frá kæranda þann 31. janúar 2022. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann vilji kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um greiðslustöðvun sem hann telji óréttmæta. Kærandi sé búinn að vera í atvinnuleit í nokkurn tíma, enda leiðsögumaður í miðjum heimsfaraldri. Þann 14. október 2021 hafi honum boðist starf hjá B sem stuðningsfulltrúi fyrir fimm, stundum sex, einhverfa drengi á grunnskólaaldri í C. Kærandi hefði þurft að sinna þeim öllum á sama tíma á meðan skólastarf stæði yfir. Hann telji sig engan veginn færan um slíkt, enda geti verið gífurlega krefjandi að vinna með einhverfum börnum. Kærandi hafi hvorki menntun, taugar né næga reynslu til að geta sinnt því starfi og því hafi hann séð sig tilneyddan til að hafna því. Vinnumálastofnun hafi krafið hann um bréf með útskýringum sem hann hafi skilað inn, en rök hans hafi ekki verið tekin gild og hafi greiðslur atvinnuleysisbóta til hans verið stöðvaðar.

Einstaklingur hafi rétt á að hafna starfi ef hann telji sig ekki geta valdið því, til dæmis bakveikur maður sem bjóðist starf sem feli í sér að lyfta þungum hlutum. Kærandi telji það sama eiga við í máli sínu því að ekki sé hægt að gera kröfu um að hver sem er sé fær um að vera stuðningsfulltrúi fyrir börn með einhverfu, hvað þá fimm til sex einhverf börn á sama tíma.

Kærandi hafi ekki einungis verið að hugsa um eigin hag heldur einnig hag einhverfu barnanna. Það myndi ekki gera þeim gott að fá mann sem ekki geti sinnt þeim á þann hátt sem þau þurfi og myndi svo vafalaust hverfa á braut skömmu eftir að hann hæfi störf þar.

Kærandi vilji að Vinnumálastofnun taki skýringarbréf hans gilt, að fallið verði frá greiðslustöðvuninni og að hann fái þann mánuð greiddan sem hafi tapast.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 6. júlí 2020. Með bréfi, dags. 15. október 2020, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur hans væri 100%. Þann 14. október 2021 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf stuðningsfulltrúa í C, en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kærandi hafnað starfinu því að erfitt yrði að sameina vinnutímann við fjölskyldulífið. Þá hafi kærandi sagst vera að sækja um frumkvöðlastyrk hjá Vinnumálastofnun. Jafnframt hafi kæranda þótt launin ekki í samræmi við það sem hann væri vanur og hafi talið líklegt að hann myndi leita að annarri vinnu þó að hann tæki umræddu starfi hjá B. Af þeirri ástæðu meðal annars hafi hann ekki viljað taka starfinu þar sem hann kæmi til með að tengjast nemendum skólans en myndi svo hefja störf annars staðar.

Með erindi, dags. 19. okóber 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Þann 21. október 2021 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Kærandi hafi kveðið ástæðu þess að hann hafi hafnað umræddu starfi vera þá að starfið fælist í því að vera stuðningsfulltrúi fyrir fimm til sex einhverfa drengi í grunnskóla. Kærandi hefði hvorki menntun né reynslu á því sviði og því hafi hann ekki treyst sér til þess að vinna svo krefjandi vinnu. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hefði í eitt sinn unnið sem stuðningsfulltrúi fyrir tíu ára dreng en þar hefði hann notið aðstoðar annarra starfsmanna. Honum hafi samt sem áður þótt starfið krefjandi. Kærandi hafi talið að það myndi aðeins valda nemendum skólans vanlíðan ef hann tæki starfinu og byggði upp traust og tengingu við þá en þyrfti svo frá að hverfa vegna þess að hann myndi ekki valda starfinu.

Með erindi, dags. 28. október 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hans vegna höfnunar á starfi hjá B hefðu ekki verið metnar gildar. Af þeirri ástæðu væru greiðslur atvinnuleysisbóta til hans stöðvaðar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 5. mgr. sömu greinar.

Kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun stofnunarinnar samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga þann 1. nóvember 2021. Kæranda hafi verið veittur rökstuðningur þann 15. nóvember 2021.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. desember 2021. Í kæru séu skýringar kæranda samhljóða þeim sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun. Kærandi telji að einstaklingur eigi rétt á því að hafna starfi telji hann sig ekki valda því. Kærandi líki aðstæðum sínum við aðstæður bakveiks manns sem boðið hafi verið starf sem felist í því að lyfta þungum hlutum. Kærandi fari fram á að skýringar hans verði teknar gildar og að ákvörðun stofnunarinnar verði felld úr gildi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem sé á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B og hann hafi veitt skýringar á ástæðum höfnunar á umræddu starfi. Því komi til álita hvort skýringar hans séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðbúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Skýringar kæranda lúti einkum að því að starfið hafi hvorki hentað reynslu hans né menntun. Kærandi hafi áhyggjur af því að hann valdi ekki starfinu. Rík skylda hvíli á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá þurfi atvinnuleitendur jafnframt að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að reynsla þeirra og menntun liggi í annarri atvinnugrein, eða að þau laun sem greidd séu fyrir starfið séu ekki í samræmi við væntingar. Þá þyki Vinnumálastofnun ljóst að aðstæður kæranda séu ekki þær sömu og aðstæður bakveiks manns sem hafi boðist starf sem felist í því að lyfta þungum hlutum. Í slíkum tilfellum beri atvinnuleitanda að framvísa læknisvottorði, veikindum sínum til staðfestingar. Þeim atvinnuleitanda verði þá ekki gert að taka starfi sem falli illa að veikindum hans, enda geri lög um atvinnuleysistryggingar beinlínis ráð fyrir undanþágu í slíkum tilfellum. Skýringar kæranda snúi jafnframt að því að það færi gegn hag þeirra barna sem honum yrði gert að annast, ef hann tæki starfinu. Að mati Vinnumálastofnunar verði slíkum skýringum ekki fundin stoð í lögum um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna. Kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 6. júlí 2021. Þegar ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 57. gr. hafi verið tekin hafði kærandi þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 25,47 mánuði. Greiðslur til kæranda hafi því verið stöðvaðar og geti hann fyrst átt rétt til atvinnuleysisbóta að nýju þegar hann uppfylli skilyrði 31. gr. laganna, sbr. 5. mgr. 57. gr.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á starfi hjá B.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 5. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í 5. mgr. 57. gr. segir að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr. Í því ákvæði kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hafnaði kærandi starfi hjá B. Í skýringum kæranda kemur fram að hann hafi hvorki menntun né reynslu til þess að vera stuðningsfulltrúi fyrir fimm til sex einhverfa drengi. Þá gaf kærandi þær skýringar að hann treysti sér ekki til að vinna svo krefjandi vinnu. Einnig hafi hann ekki viljað valda drengjunum vanlíðan ef hann tæki starfinu og byggði upp tengingu við þá en myndi svo þurfa að hætta þar sem hann myndi ekki valda starfinu.

Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti því að hafna starfi hjá B.

Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2021, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum